|
Frestur Péturs, á hnén!
Fyrir 622 dögum
|
17.02.2008 23:09:11 / Anna
Já ég er flutt, eða öllu heldur er ég búin að flytja párið mitt Sjáum til hvort það gangi ekki betur á nýja staðnum...... 123.is/baraanna
K.kv."bara"Anna
»
16.02.2008 08:23:39 / Anna
Mér varð á að horfa á þátt á stöð tvö í gærkvöldi, hefði svona eftirá að hyggja átt að nota tímann í eitthvað annað en allavegana....... þessi tiltekni þáttur er um vel þreitttann tónlistamann sem er að leita að söngvara í hljómsveit, tileygð fegurðardrottning er svo honum til aðstoðar og nokkrir sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum, það sem fór svona fyrir bróstið á mér viðkvæmri, húmorslausri konunni var orðbragð þeirra sem stjórna þessum blessaða þætti, að kalla kvenkyns söngvara "TÚTTUR" og segja að það sem sé verið að leita að sé "GRAÐUR" söngvari Vá er ég allveg að breitast í heilaga jómfrú eða er ég að missa af einhverri þróun í höfuðborgini sem ég vill alls ekki vita af Einn af keppendunum fékk sé "viskí" sem morgun hressingu svona til þess að mýkja raddböndin, mikið hefði þessi náungi verið flottari ef hann hefði fengið sér LÝSI það smyr mjög vel. Ég er kanski ekki vöknuð, en þetta var það sem lá mér á hjarta í morgunsárið, svona í lokin langar mig að segja ykkur frá því að við hjónin fórum ÚT að borða í gærkvöldi, reyndar með 15.fyrirmyndar börn-unglinga með okkur já eða voru við með þeim, allavegana þá var mjög gaman að borða pizzu (flatböku) með bekknum hennar Elísu á Sumarlínu, karakkarnir voru sínum og sjálfum sér til sóma. ég hef þetta þá ekki lengra, er á leiðinni uppá Egilst. áður en ég fer í vinnu, njótið dagsins og míkið hálsinn og raddböndin með einhverju óáfengu svona í morgunsárið
K.kv.Anna"kelling"
»
15.02.2008 09:21:36 / Anna
Það hefur verið talað mikið um fordóma í garð Pólverja undanfarið, fordómar spretta yfirleitt upp af fáfræði, fáfræði er gott orð sem segir akkúrat það sem það þíðir. Það er svipað að vera með fordóma gagnvart "útlendingum" og að halda að allir sem hafi leitað sér hjálpar vegna vanlíðan í sálinni hafi búið við sundin blá í lengri tíma jafnvel verið aðalpersónan í Englum alheimsins. Það eru ekki allir nýbúar landsins "krimmar".
Ég líki oft sál minni við kommóðu, til þess að geta lokað skúffunum þá þarf að vera svona passlegt skipulag, öll eigum við okkar "rusla skúffu" en verðum bara að passa að hún yfirfyllist ekki og það sem er mikilvægast af öllu að kommóðan detti ekki framfyrir sig.
Ég gæti líka litið á sál mína sem fimm hæða blokk, en þá væri verkefnið óyfirstíganlegt, að halda stigagnanginum og öllum íbúðunum í röð og reglu og hafa svo þvottahúsið sem "ruslaskúffu" nei þá gæfist ég upp.
Þegar ég var tvítug, semsagt fyrir nokkrum árum, þá þurfti ég hjálp við tiltektina í "kommóðuni" hún var að detta fram fyrir sig. Síðan hef ég reglulega tekið rækilega til og reynt að halda öllu í skefjum þess á milli, ég er ekkert vonlaust "keis" heldur svo vel af Guði gerð að ég viðurkenni að til þess að "fúnkera" þá þarf ég að vera meðvituð um kommóðuna semsagt sálina.
Jens er með brotan tá, það sést hann gengur eins og halta Lotta í Emil í Kattholti, það er miklu auðveldara að vera haltur en að þurfa hækju á sálina, það er engin sem sér ef maður er með hækju á sálinni, en brotin tá mætir skilning.
Þetta var pár dagsins, halta Lotta er komin heim í níu-kaffi og ég ætla að vera góð við hann því hann er með brotna tá, verið góð hvert við annað og njótið dagsins.
K.kv.Anna með halta sál
»
11.02.2008 10:25:09 / Anna
Ég fékk svo skemmtilegt sms fyrir helgina, það ver frá noskri vinkonu minni sem heitir Ingvill, við höfðum tínt hvor annari já eða ég hélt að hún væri búin að gleyma mér, en þá var hún bara búin að týna öllum upplýsingum um mig og var búin að hafa mikið fyrir því að finna mig aftur, hvernig datt mér í hug að hún væri búin að gleyma mér Getur einhver gleymt mér sem hefur verið svo heppinn að kynnast mér á annað borð Þannig að í dag tileinka ég Ingvill vinkonu minni bloggið og skrifa restina á norsku Eigið góðan dag K.kv.Anna ógleymanlega Til deg Ingvill Jeg var saa redd for at du havde glemt meg, men det gaar jo ikke an aa glemme meg, jeg har ikke glemt dere og er saa glad for at du fant meg igen Haaper du finnue ut av bildene, myndaalbúm skjönner du Ha en fin dag og kos deg med barna dine, saa rike dere er Stor klem fra Anna (lett med vett) ha,ha,ha,ja veldig, har sikkert glemt vettet i Norge
»
09.02.2008 09:17:27 / Anna
»
07.02.2008 21:06:40 / Anna
Bara allt í standi í borg óttans, snjór og ófærð Það endaði nú með því að ég lækkaði niður í útvarpinu í dag, alumingja fólkið þetta hljómaði eins og náttúruhamfarir, það getur ekki verið að allt þetta fólk sé ómissandi í vinnuni sinni, það hlítur allavegana að geta beðið þangað til það er fært Það var ágætlega fært milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar í dag en ég er nú líka vel búin á henni Oktavíu og með skóflu í skottinu Eitt er víst ég ætla ekki að láta bjarga mér úr snjóskafli á háhæluðum skóm, ég ferðast alltaf í bomsum, það er svo hallærislegt að komast ekki útúr búílnum því þá skemmast skórnir. Hrós dagsins fær konan frá Súðavík sem var á leiðinni til Ísafjarðar í dag en lenti í snjóflóði, hún var sko róleg hlítur að vera Vestfirsk í báðar ættir Minn ástkæri ektamaður er sofnaður, hann fer á fætur kl.03.00 þessi völd hefur fröken Loðna, heimasætan er í saundlaugapartý og ég væri allveg tilí að fara bara að skríða uppí en verð nú að bíða eftir barninu Hvernig verður þetta þegar hún kemst á böllin, stjúpan heima með vökustaura (eldspítur) í augnlokunum og með kíkirinn við hendina til þess að sjá með hverjum hver fer útaf ballinu mér er nú eiginlega farið að hlakka til Farið vel með ykkur, njótið lífsins og verið veðurteppt heima hjá ykkur en ekki á Miklubrautinni K.kv.Anna í firðinum vel færa
»
06.02.2008 12:48:49 / Anna
»
04.02.2008 08:42:23 / Anna
Það er Bolludagur heimasætan fékk sér eina bollu í eftirrétt í gærkvöldi en vildi frekar hafa með sér túnfisksamloku í nesti í skólan, ætlar að borða bollur þegar hún kemur heim, ég er annars búin að vera að velta fyrir mér hlínun jarðar, verð eitthvað svo lítið vör við vanda málið þessa dagana svo er það Islam, við sátum við eldhúsborðið í gærkvöldi og fórum yfir heimalærdóminn, Múhamed og Islömsk trú var það sem við vorum að kljást við í sameiningu, heimasætunni varð að orði að hún skyldi nú ekkert í þessum ófriði í þessum löndum, Múhamed hefði nú bara verið eins og Jesú=góður maður já það er spurning hvort þeir séu eitthvað að misskilja þarna í austurlöndum fjær, eða kanski með svona rosalega lesblindu allur hópurinn, maður spyr sig Hafið það gott í dag og njótið þess að fá ykkur rjómabollu í kaffinu, það er ár í næsta bolludag K.kv.Anna Bolla
»
02.02.2008 12:53:31 / Anna
Þessi orð eru góð og gild þó gömul séu, ég ætla að nota dagin í dag í saumaherberginu, ekki að það sé neitt óvenjulegt en í dag rifja ég upp hvar sköpunargáfa mín og saumagleði upphófust... Auðvita er það í genunum að vera flink í höndunum bæði í móður og föður ætt, mamma saumaði mikið á okkur krakkana en það var kanaki ekki mikill tími til þess að leifa manni að fikta í saumavélinni, ömmur mínar voru miklar handavinnukonur, en það er ekki nóg að hafa þetta í blóðinu, þegar ég flutti á Patreksfjörð þá var fyrsti veturinn í handavinnu hálf niðurbrjótandi, ég var sein en vandvirk, handavinnupokinn sem var skildustikki var ekki fullbúin hjá mér fyrr en með vorinu og hafði kennarinn á orði að þeg hefði átt að hafa annað ártal á honum en hinar stelpurnar því ég væri búin að vera svo lengi að klárann Úff, ég sem er svo langrækin man þetta ennþá En næsta haust á eftir þá kom "nýr" handavinnukennari, hún Ninna okkur fannst hún svolítið gömul en ég held hún hafi verið rúmlega fimmtug, Ninna hækkaði aldrey róminn og hafið endalausa trú á því að við gætum gert það sem okkur datt í hug, ég minnist þess að fyrir jól kom hún með greni og kerti og við gerðum jólaskreytingar, það var mín fyrsta skreiting en ekki sú síðasta Ef maður var í vandræðum með saumaskapinn og þurftir hjálp þá stóð heimilið hennar Ninnu alltaf opið, það voru ófá skiptin sem ég fór heim til Ninnu og hún bjargaði mér þegar mamma var búin að segja að þetta hefði nú kanski verið aðeins og dirfskulegt að ætla að sauma ullarjakka með hettu svona á einni helgi, Ninna hafði fulla trú á því að þetta yrði fín flík og það var nú oft henni að þakka að flíkin varð fín, í dag verður Ninna borinn til hinstu hvílu á Patreksfirði, það eru konur eins og hún sem hafa séð til þess að ég hef trú á mér og held ég sé bara nokkuð góð saumakona Eigið góðan dag og munið að á bakvið gott líf stendur gott fólk K.kv.Anna 
»
31.01.2008 07:40:19 / Anna
Það sést ekki útum gluggana á Mánaborg, það er allvöru vetur ég man svo vel eftir svona veðri þegar ég var lítil, svona á veturinn að vera. Þegar maðurinn í lífi mínu var lítill, löngu áður en ég fæddist, þá var svo mikill snjór að það voru bara för eftir eyrnasneplana á honum þegar hann labbaði í skólann, þessa sögu hefur hann oft sagt mér. Ég man eftir því þegar það var verið að aflísa skólahaldi einhverstaðar, útvarpsþulan grafallvarleg en aldrei sagði hún Grunnskóli Patreksfjarðar Það er skrítið hvernig veðrið hefur áhrif á fólk, ég velti því oft fyrir mér hverning það sé að búa á stað þar sem veðrið er alltaf eins, er fólkið þá alltaf eins Kanski er ég ekki allveg vöknuð, en þetta eru allavegana hugsanir mínar í morgunsárið, ég lét klukkuna vekja mig því ég ætla inní saumaherbergi og dunda mér, það er ekkiert vit í því að sofa of mikið Þá set ég punkt á párið, eigið góðan dag, vefjið ykkur inní jákvæðar hugsanir og njótið þess að vera til K.kv.Anna í snjóhúsi
»
30.01.2008 09:17:38 / Anna
Það eru tvö ár í dag síðan ég byrjaði að pára á netinu, BLOGG er eitthvað svo óíslenskt, það væri nú eðllilegra að kalla þetta pár já eða hvað finnst ykkur ég saumaði einn kanínustrák í gærkvöldi, hann heitir Friðfinnur, hann fer uppí Egilsstaði seinna í dag og eignast þar nýja fjölskyldu, úff það er nú ekki fallegt að selja börnin sín Held ég segi bara njótið dagsins, ég ætla að fara að henda mér í steypibaðið og koma mér svo af stað í vinnuna K.kv.Anna Austurland að Glettningi 2.ára Þetta reiknaði maðurinn í lífi mínu út í kaffitímanum sínum núna kl.09.00: 2ár af pári eru 730.dagar og 17520 klukkustundir, að meðaltali hafa komið 89.heimsóknir á dag svo ég verð nú bara að þakka fyrir komuna og ekki síður þakka fyrir að þetta eru bara heimsóknir í netheimum því annars hefði ég ekki tíma til annars en að hella uppá og baka gulrótakökur
»
29.01.2008 13:01:00 / Anna
Auðvita var það rétt ábending hjá hinni góð frú Helgu að skólinn sér ekki um æskulýðsstarfið, en hvorutveggja er hluti af okkar blómlega sveitafélagi Fjarðabyggð, þykir mér því eðlilegt að börnin séu látin vita í skólanum ef æskulýðsstarfið fellur niður, það er enginn við á skrifstofu Farðabyggðar þegar börnin koma spæld heim eftir fíluferð í "Æskó". Forvarnar fundurinn var gagnlegur á margan hátt þó svo að meiri upplýsingar lægju fyrir hjá Lögreglunni um hversu margar nauðganir hefðu átt sér stað í firðinum fagra heldur en fíkniefnabrot, það var bara hægt að segja hversu mörgfíkniefna brot hefðu verið framin í sveitafélaginu öllu og alls ekki hægt að fræða okkur foreldrana um það hvort einhver af þessum 16.fíkniefna málum eða hvað þau voru nú mörg hefðu átt sér stað á Fáskrúðsfirði, við erum semsagt sameinað sveitafélag þegar kemur að fíkniefna málum en ekki þegar kynferðisbrot eru skráð og kynnt fyrir íbúum þorpsins sem dags daglega er friðsællt og fagurt. Er semsagt ennþá í ham, en það væri nú ekkert gaman af þessu pári ef ég skrifaði bara um köflótt viskustykki og heimabakaða gulrótaköku eigið góðan dag og njótið þess að ver til. K.kv.Anna í góðaum gír
»
28.01.2008 15:36:51 / Anna
»
26.01.2008 22:46:25 / Anna
Náði að breita flugmiðanum þannig að ég er komin heim í fjörðin fagra í faðm fjölskyldunar, heimasætan er ánægð að vera búin að fá stjúpuna heim og svo bættist við nýr meðlimur í fjölskylduna, Lalli Lagarfljótsormur gengur nú reyndar (sem betur fer) fyrir rafhlöðum en er víst ótrúlega skemmtilegur þó stjúpuni finnist hálfgerður háfaði í þessu dóti Kveð að sinni vildi bara láta vita af mér og að ég væri komin heil heim, góða nótt öllsömul K.kv.Anna ferðalangur
»
Síður: 1 2 3 ... 34
|
|